Björk - kæru íslendingar⁣ ⁣ mig langar til að bjóða ykkur upp á tónleika ⁣ ⁣ mig langar til að fagna þess að við erum komin út úr alla vega fyrsta stigi kórónu-faraldursins ⁣ og halda upp á...

kæru íslendingar⁣
⁣
mig langar til að bjóða ykkur upp á tónleika ⁣
⁣
mig langar til að fagna þess að við erum komin út úr alla vega fyrsta stigi kórónu-faraldursins ⁣
og halda upp á hversu mörgum íslenskum tónlistarmönnum ég hef unnið með í gegnum tíðina ⁣
⁣
ég tók næstum allar plöturnar mínar með hljóðfæraleikurum héðanfrá⁣
⁣
homogenic með íslenskum strengjaoktett⁣
medúllu með schola cantorum , íslenskum blönduðum kór⁣
voltu með 10 brass-stelpum sem ég fann um allt land og þær síðan formuðu wonderbrass⁣
bíófílíu með langholtskirkju kvennakór graduale nobili ⁣
vúlnikúru með 15 manna strengjasveit ⁣
 útópíu með 12 flautuleikurum sem síðan stofnuðu flautuseptettinn viibra⁣
kornukópíu með hamrahlíðarkór stjórnuðum af þorgerði ingólfsdóttur⁣
svo spiluðum við öll á tónleikum þvers og kurs um kringum hnöttinn ⁣
⁣
samtals eru þetta yfir hundrað manns !!⁣
⁣
mig langar til að halda helgar tónleika í hörpu í ágúst⁣
þeir verða "unplugged" eða án slagverks og eletróníku ⁣
með sinfóníu hljómsveit íslands og fleiri gestum ⁣
⁣
mitt innleg til feminisma verður að monta mig yfir því að langflestar útsetningarnar eru eftir mig ⁣
þetta er því miður eitthvað sem er of oft horft framhjá hjá konum ⁣
fyrirgefið að troða þessu inn⁣
eða ekki ... ? ⁣
⁣
tónleikarnir verða klukkan 5 og fólki boðið upp á veitingar eftir tónleikana til styrktar kvennaathvarfsins⁣
⁣
mig langar til að fagna því sem við höfum hér á íslandi , án umgjarðar . þakka öllu þessu ótrúlegu tónlistarfólki og tónlistarhöll sem við eigum . ⁣
vírusinn hefur kennt okkur öllum að við höfum nóg . og að við verðum að hjálpa til þar sem við getum . og @blacklivesmatter hefur minnt okkur harkalega á að líta í eiginn barm hvað varðar rasisma og virðingu , skilning og meiri aðstoð við flóttamenn sem koma hingað ⁣
⁣
ég hlakka til að sjá ykkur ⁣
⁣
mikil ást ⁣
⁣
birkið
kæru íslendingar⁣ ⁣ mig langar til að bjóða ykkur upp á tónleika ⁣ ⁣ mig langar til að fagna þess að við erum komin út úr alla vega fyrsta stigi kórónu-faraldursins ⁣ og halda upp á hversu mörgum íslenskum tónlistarmönnum ég hef unnið með í gegnum tíðina ⁣ ⁣ ég tók næstum allar plöturnar mínar með hljóðfæraleikurum héðanfrá⁣ ⁣ homogenic með íslenskum strengjaoktett⁣ medúllu með schola cantorum , íslenskum blönduðum kór⁣ voltu með 10 brass-stelpum sem ég fann um allt land og þær síðan formuðu wonderbrass⁣ bíófílíu með langholtskirkju kvennakór graduale nobili ⁣ vúlnikúru með 15 manna strengjasveit ⁣ útópíu með 12 flautuleikurum sem síðan stofnuðu flautuseptettinn viibra⁣ kornukópíu með hamrahlíðarkór stjórnuðum af þorgerði ingólfsdóttur⁣ svo spiluðum við öll á tónleikum þvers og kurs um kringum hnöttinn ⁣ ⁣ samtals eru þetta yfir hundrað manns !!⁣ ⁣ mig langar til að halda helgar tónleika í hörpu í ágúst⁣ þeir verða "unplugged" eða án slagverks og eletróníku ⁣ með sinfóníu hljómsveit íslands og fleiri gestum ⁣ ⁣ mitt innleg til feminisma verður að monta mig yfir því að langflestar útsetningarnar eru eftir mig ⁣ þetta er því miður eitthvað sem er of oft horft framhjá hjá konum ⁣ fyrirgefið að troða þessu inn⁣ eða ekki ... ? ⁣ ⁣ tónleikarnir verða klukkan 5 og fólki boðið upp á veitingar eftir tónleikana til styrktar kvennaathvarfsins⁣ ⁣ mig langar til að fagna því sem við höfum hér á íslandi , án umgjarðar . þakka öllu þessu ótrúlegu tónlistarfólki og tónlistarhöll sem við eigum . ⁣ vírusinn hefur kennt okkur öllum að við höfum nóg . og að við verðum að hjálpa til þar sem við getum . og @blacklivesmatter hefur minnt okkur harkalega á að líta í eiginn barm hvað varðar rasisma og virðingu , skilning og meiri aðstoð við flóttamenn sem koma hingað ⁣ ⁣ ég hlakka til að sjá ykkur ⁣ ⁣ mikil ást ⁣ ⁣ birkið

0
Posts of category "Look"
Not yet in SQUPER?
Here we discuss cosmetics, fashion, beauty, health and other topics useful for everyone.
arrow